Það styttist óðum í eina skemmtilegustu bæjarhátíð landsins þegar Hamingjan við hafið fyllir Ölfusið af lífi, litum og gleði dagana 4.–9. ágúst 2026.
Fram undan eru fimm dagar af gleði, menningu og ógleymanlegum viðburðum
Dagskrá fyrir alla
Hátíðin hefst á þriðjudegi með sýningunni Litalandi með Leikhópnum Lottu. Síðan verður fjölbreytt dagskrá alla vikuna. Gestir geta meðal annars tekið þátt í leikjum, froðurennibraut, hverfafótbolta, sundlaugarpartýi, menningargöngu, pub quizi og einstakri gusuupplifun Fjörugufunnar.
Það verður sannkallaður fimmtudagsfiðringur í garðinum hjá Róberti og Guðlaugu þegar þau bjóða í tónlistarveislu þar sem Hreimur Örn, Sóli Hólm, Júlí Heiðar, Jónas Sig, Árni þór, Tómas Jónsson, Steini Bjarka, Róbert Dan og Jón Guðfinnsson gleðja augu og eyru.
Á föstudagskvöldinu verður sannkölluð tónlistarveisla þegar Hr. Hnetusmjör, Emmsjé Gauti, Júlí Heiðar, Kristmundur Axel og Sveitamenn stíga á svið og sjá til þess að stemningin nái hámarki.
Laugardagurinn verður stór fjölskyldudagur í Skrúðgarðinum. Boðið verður uppá glæsilega barnadagskrá með Lalla töframanni, BMX Bros, Línu Langsokk og Sirkus Íslands, söngkeppni barnanna, street ball, hoppuköstulum, markaðsstemningu, matarvögnum og fjölmörgu öðru. Hestamannafélagið Háfeti býður börnum í heimsókn og Argh - heimagallerí Reykjabraut 19 býður heim í kósí kaffihúsastemmingu. Um kvöldið taka við stórtónleikar með Bríet, Stebba Hilmars, Audda og Steinda. Björgunarsveitin Mannbjörg verður með glæsilega flugeldasýningu í lok kvöldsins og síðan hefst ball ársins.
Á sunnudeginum verður Opna Hamingjumótið í golfi hjá golfklúbbi Þorlákshafnar. Um er að ræða tveggja manna Texas scramble leikfyrirkomulag, sjá nánari upplýsingar hér
Sundlaug Þorlákshafnar verður opin alla helgina.
Litagleðin tekur yfir bæinn
Eitt af því sem gerir Hamingjuna við hafið svo einstaka er þegar íbúar skreyta hús sín og garða í regnbogans litum. Allir eru hvattir til að taka þátt og skapa litríka og skemmtilega stemningu um allt sveitarfélagið.
Hvort sem þú ert íbúi eða gestur er bæjarhátíðin "Hamingjan við hafið" tilvalin til að njóta samveru, skemmtunar og þeirrar einstöku stemningar sem hefur gert hátíðina að föstum lið í íslensku sumri.
Fylgstu með nýjustu upplýsingum og dagskrá á Facebook-síðunni Hamingjan við hafið.
Sjá upplýsingar um tjald og ferðahýsasvæði
Upplýsingar fyrir íbúa um litahverfin
Það verður gaman saman í Hamingjunni!