A.T.H. allar eldri umsóknir óskast endurnýjaðar
Auglýst er til leigu félagslegt leiguhúsnæði að Sambyggð 6 í Þorlákshöfn. Íbúðin er staðsett á 3ju hæð. Um er að ræða 3ja herbergja íbúð, 78,2 fermetrar. Íbúðin er laus strax.
Forsenda þess að geta sótt um félagslegt leiguhúsnæði er að umsækjandi uppfylli öll eftirfarandi skilyrði:
- Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára gamall
- Umsækjandi þarf að hafa átt lögheimili samfellt í sveitarfélaginu Ölfus í að minnsta kosti 12 mánuði.
- Umsækjandi má ekki vera eigandi fasteignar sjálfur
- Umsækjandi þarf að vera innan fyrirfram ákveðinna tekju- og eignamarka.
Uppfylli umsækjandi ofangreind skilyrði raðast umsóknin í forgangsröð samkvæmt matsviðmiði reglugerðar sveitarfélagsins um félagslegt leiguhúsnæði. Haft er til hliðsjónar við mat á umsókninni m.a. félagsleg staða umsækjanda, félagsleg staða maka, tekjur og eignir, húsnæðisstaða, skuldastaða og sérstakar aðstæður barna.
Úthlutun íbúðarinnar fer fram hjá fagteymi húsnæðismála velferðarþjónustu Ölfuss og tekur mið af fyrirliggjandi gögnum.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókninni eru eftirfarandi:
- Staðfest skattframtal síðustu þriggja ára
- Launaseðlar umsækjenda og maka/sambúðaraðila (ef við á) og barna sem eru orðin eldri en 20 ára en búa enn heima.
- Upplýsingar um atvinnuleysisbætur ef við á.
- Yfirlit yfir tekjur frá Tryggingastofnun og greiðslur barnameðlaga ef við á.
- Yfirlit yfir greiðslur úr lífeyrissjóðum ef við á.
- Yfirlit yfir fastar greiðslur eða lán, afrit skuldabréfa og annarra skulda og yfirlit yfir almennan kostnað við framfærslu síðustu mánuði.
Sótt er um rafrænt á heimasíðu sveitarfélagsins Ölfuss:
https://www.olfus.is/is/moya/formbuilder/index/index/umsokn-um-felagslega-leiguibud
Umsóknafrestur er til 31. desember 2026 og þurfa öll gögn sem fylgja eiga umsókninni að hafa borist fyrir þann dag.
Nánari upplýsingar veitir Eyrún Hafþórsdóttir, sviðsstjóri velferðarþjónustu, á netfanginu eyrun@olfus.is