Uppgræðslusjóður Ölfuss

Uppgræðslusjóður Ölfuss auglýsir eftir umsóknum  um styrki til uppgræðsluverkefna 2021.

Heimilt er að veita landeigendum, Sveitarfélaginu Ölfusi, félagasamtökum og öðrum umráðahöfum lands styrki til landbótaverkefna.

Með styrkveitingum úr sjóðnum er ætlunin að efla landgræðslu og gróðurvernd í Sveitarfélaginu Ölfusi.

Styrkhæf verkefni:

Við ákvörðun um styrkveitingar er einkum lögð áhersla á verkefni sem falla að framkvæmdaáætlun sjóðsins en hún beinist að eftirfarandi verkefnum:

 a.     Stöðvun sandfoks, eflingu gróðurs og jarðvegsverndarskógrækt í nágrenni Þorlákshafnar.

b.      Stöðvun jarðvegsrofs og endurheimt gróðurs á 700 ha landsvæði milli Hengils og Lyklafells.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Halldórsson umhverfisstjóri  david@olfus.is

Einnig má finna frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð á heimasíðu sveitarfélagsins á slóðinni www.olfus.is

Skila þarf inn umsóknum fyrir 1. mars. n.k. á bæjarskrifstofur Ölfuss Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn eða senda á david@olfus.is

                                                                                     Uppgræðslusjóður Ölfuss

Umsóknareyðublað

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?