Bæjarráð Ölfuss samþykkti á fundi sínum 5. nóvember sl. úthlutun úr Lista- og menningarsjóði Ölfuss fyrir árið 2026.
Að þessu sinni voru alls 1.440.000 krónur til úthlutunar og bárust fjölbreyttar umsóknir sem endurspegla öflugt lista- og menningarlíf í sveitarfélaginu.
Markmið sjóðsins er að efla menningarstarfsemi og listsköpun í Ölfusi og styðja við verkefni sem tengjast sveitarfélaginu með einum eða öðrum hætti. Bæjarráð lýsti ánægju með fjölbreytileika og gæði þeirra umsókna sem bárust.
Styrkþegar árið 2026 eru:
- Lúðrasveit Þorlákshafnar vegna vortónleika, 505.000 kr.
- Tónlistaskóli Árnesinga vegna verkefnisins Brú milli tóna, 250.000 kr.
- ARGH verjar vegna listasýningarinnar Hamingjuopnun, 200.000 kr.
- Hamingjuhöfn vegna miðlunar frétta úr heimabyggð, 200.000 kr.
- WindWorks alþjóðleg tónlistarhátíð, 100.000 kr.
- Kirkjukór Kotstrandarsóknar og Hveragerðis vegna afmælistónleika, 100.000 kr.
- Ármann Elías vegna verkefnisins Lifandi popptónlist, 85.000 kr.
Sveitarfélagið Ölfus óskar styrkþegum innilega til hamingju og hlakkar til að sjá þau fjölbreyttu verkefni sem framundan eru auðga menningar- og mannlíf sveitarfélagsins.
Nánari upplýsingar má finna í fundargerð Bæjarráðs Ölfuss frá 5. nóvember 2026.