Nýjar lóðir til úthlutunar

Uppdráttur af nýju hverfi í Þorlákshöfn
Uppdráttur af nýju hverfi í Þorlákshöfn

Sveitarfélagið Ölfus auglýsir nýjar raðhúsalóðir lausar til úthlutunar í nýju hverfi er kallast Norðurhraun í Þorlákshöfn.

Hverfið er samofið Sambyggð, Norðurbyggð og Básahrauni. Það mótar skemmtilega heild við innkomu bæjarins með góðri tengingu við Ölfusbraut. Um 30 metrar eru frá Ölfusbraut að byggingarreit þar sem gróðurbelti og mön mun ramma hverfið inn. Flest húsin tengjast náttúrulegu umhverfi eða leiksvæðum. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og íþróttir.
Hverfið er eitt af mörgum skrefum sveitarfélagsins í átt að frekari uppbyggingu. Um er að ræða fyrsta áfanga nýrrar byggðar þar sem níu raðhúsalengjur fara í úthlutun. Raðhúsalengjurnar telja 3-4 einingar hver.

Gatnagerð er hafin á svæðinu og verður henni lokið um miðjan desember. Úthlutun lóða fer fram skv. úthlutunarreglum sveitarfélagsins sem má lesa hér.
Afhending og úthlutun miðast við 1. janúar 2020. 

Umsóknir fara fram í gegnum íbúa- og þjónustugátt sveitarfélagsins á forsíðu eða á www.olfus.ibuagatt.is.
Gjald er tekið fyrir hverja umsókn.

Deiliskipulagsuppdráttinn má skoða hér.
Upplýsingar úr greinargerð:
Raðhús
Heimilt að reisa 3-4 íbúða raðhús á 1 hæð með innbyggðum bílgeymslum. Á deiliskipulagsuppdrætti eru húsaeiningar í raðhúsalengjum almennt sýndar jafnbreiðar. Misbreiðar einingar eru heimilar innan byggingarreits lóðar ándeiliskipulagsbreytinga. Heimilt er að aðlaga hús að landi með stallaðri gólfplötu. Mænishæð verði að öllu jöfnu 5,0 metrar yfir gólfkóta aðalhæðar, nema sé um einhalla þak að ræða er heimilt að fara í 5.5 m. Grunnflötur húss verði ekki stærri en sem nemur 120 m2 þar með talin bílgeymsla og útbyggingar. Frágengið yfirborð við húsvegg skal ekki vera neðar en 50 cm undir uppgefinni plötuhæð jarðhæðar og eru frávik frá því háð samþykki byggingarnefndar. Bílastæði sem liggja hornrétt á götu skulu ekki vera styttri en 7.0 metrar framan við bílageymslur.

Lóðirnar eru allar leigulóðir og kostnaður af þeim því einungis gatnagerðargjald skv. gjaldskrá og vísitölu. Þjónustugjöld byggingarfulltrúa sem og fyrirtökugjald nefndar, fyrir hverja umsókn, eru skv. gjaldskrá og vísitölu. Gatnagerðargjald fyrir raðhúsalóðir reiknast eftir stærð lóðar. Lóðir eru frá u.þ.b 1150-1850 m2.

Í kortasjá má skoða lausar lóðir.

Eftirfarandi einingar eru til úthlutunar:
Katlahraun 1-3-5
Katlahraun 2-4-6
Katlahraun 7-9-11
Katlahraun 8-10-12
Katlahraun 14-16-18-20
Núpahraun 19-21-23-25
Núpahraun 20-22-24-26
Núpahraun 27-29-31-33
Núpahraun 35-37-39-41

Norðurhraun - Lausar lóðir

Fyrstu umsóknir verða teknar fyrir á næsta afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann, 10 október n.k.

Einnig má sjá lista um aðrar lausar lóðir í sveitarfélaginu hér.

Nánari upplýsingar veitir Kristinn Pálsson, verkefnastjóri skipulagsmála, á kristinn@olfus.is eða í síma 480-3800.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?