Á námskeiðunum er lögð áhersla á frjálsan leik, hreyfingu og listsköpun.
Það er fjör í sumarstarfi fyrir krakka í Ölfusi
Boðið verður uppá fjölbreytt og skemmtileg námskeið í sumar.
Á sumrin bjóða íþrótta- og frístundafélög í Ölfusi uppá námskeið en einnig er fjölbreytt framboð á menningar- og listatengdum námskeiðum.
Sumarfrístund fyrir börn í 1. - 4.b. er opin frá kl. 8 - 16 virka daga frá 10. júní - 7. júlí. og 10. ágúst - 14. ágúst.
Fylgist vel með viðburðadagatali Ölfuss á heimasíðu sveitarfélagsins olfus.is en þar má finna upplýsingar um öll sumarnámskeiðin. Einnig má sjá nánari upplýsingar hjá námskeiðshöldurum. Athugið að fleiri námskeið eru fyrirhuguð í sumar sem verða auglýst síðar á olfus.is.
Góð samvera - góðar minningar
Reynslan hefur sýnt að foreldrar sem taka virkan þátt í lífi barna sinna eru besta forvörnin. Samvera foreldra og barna er afar mikilvæg og gefast mörg tækifæri til slíkra stunda á sumrin. Mikilvægt er að allir taki höndum saman og hugi að öryggismálum í sumarleikjum. Trampolín eru nokkuð algeng í görðum og er brýnt að foreldrar ítreki fyrir börnum að sýna aðgát og að öryggisnet séu uppsett. Munum líka eftir hjálmunum í sumar, hvort sem við erum á hjóli, hestbaki, línuskautum eða brettum.
Sjá upplýsingar um íþróttamannvirki og -starf í Ölfusi
Námskeið í boði 2026:
Listnámskeið og sköpun:
Leik og sprell 15. - 20. júní
Söng- og leiklistarnámskeið sem þar sem allir fá tækifæri til að syngja, leika og
sprella og út frá lögunum sem börnin hafa valið sér. Í lokin verður glæsileg
sýning sem er opin fyrir aðstandendur.
Námskeið í skapandi skrifum 22. - 26. júní
Krakkarnir að læra m.a. að skrifa og myndlýsa sögur, teikna og hann sögupersónur.
Leirlistanámskeið 22. - 24. júní og 3. júlí
Krakkarnir læra mismunandi aðferðir í handmótun með leir, skreyta verkin sín með leirlitum og glerja.
Dungeons og Dragons 29. júní - 3. júlí
Ævintýra spunaspil með langa sögu þar sem spilarar setja sig í hlutverk hetju í fantasíu heimi.
Á námskeiðinu verður farið yfir öll helstu atriði spilsins.
Íþróttaæfingar fyrir krakka í sumar:
Fótboltaskóli fyrir börn og unglinga
Golfæfingar fyrir börn og unglinga
Fimleikanámskeið
Körfuknattleiksæfingar fyrir 7 - 18 ára
Frjálsar Íþróttir
Sundnámskeið fyrir yngri börn
Rafíþróttir
Reiðnámskeið
Sumarfrístund fyrir 6 - 10 ára börn
Fjölbreytt námskeið þar sem börnin upplifa ævintýri náttúrunnar
og efla hæfni í listsköpun, hreyfingu og frjálsum leik.
Sumarféló fyrir fötluð 11 til 18 ára börn og unglinga
Í boði verða léttar íþróttaæfingar og hreyfileikir auk námskeiða í listgreinum þar sem börnin fá tækifæri til
að prófa sig áfram í tónlist, myndlist, handverki og skapandi verkefnum.
Einnig verður boðið upp á starfstengda fræðslu sem dæmi vinnuskólaverkefni.