Auglýsing um skipulag

Eftirtaldar skipulagstillögur voru samþykktar til auglýsingar í bæjarstjórn þann 27. apríl, og 29. júní í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar og 31. grein skipulagslaga nr.123/2010.

 

Deiliskipulagstillaga fyrir Þóroddsstaði 2 - lóð d.

Tillagan gerir ráð fyrir að lóðinni verði skipt í tvo hluta, markaður byggingarreitur fyrir íbúðarhús og bílskúr á annarri en 9 ferðaþjónustuhús á hinni. Heimilt verður að byggja allt að 1450 fermetra af byggingum á báðum lóðunum. Þetta er í samræmi við aðalskipulag Ölfuss 2020-2036.

Þóroddsstaðir 2 lóð D - deiliskipulagstillaga

 

Breyting á deiliskipulagi lóðanna Gljúfurárholt 13 og 14

Gerð er tillaga um breytingu á deiliskipulagi lóðanna Gljúfurárholt 13 og Gljúfurárholt 14 sem nú heita Gljúfurholt og  Bjarg. Uppbyggingarheimildir eru auknar í samræmi við það sem aðalskipulag Ölfuss heimilar.

Gljúfurárholt land 13 og 14 - deiliskipulagsbreyting

 

Tillaga að deiliskipulagi lóðarinnar Spóavegur 12a

Tillagan gerir ráð fyrir að byggja megi íbúðarhús, gestahús og bílskúr á lóðinni í samræmi við heimildir aðalskipulags Ölfuss 2020-2036.

Spóavegur 12a - deiliskipulagstillaga

 

 

Aðalskipulagsbreyting fyrir Móa miðbær í Þorlákshöfn - M1

Um er að ræða breytingu á aðalskipulagi á reit sem kallaður er M1 í aðalskipulagi.Breytingin snýst um að íbúðum í reitnum er fjölgað úr 80 í 200.Samtímis er deiliskipulagi sem er í gildi á reitnum breytt þannig að markað er miðbæjartorg á reitnum, umkringt húsum sem hýsa ýmsa miðbæjarstarfsemi þar á meðal hótel. Íbúðir verða einnig á efri hæðum húsa sem geta orðið allt að 5 hæðir.

Miðbær aðalskipulagsbreyting

Tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir Móa miðbær í Þorlákshöfn - M1

Um er að ræða breytingu á deiliskipulaginu "Deiliskipulag Móa - Miðbæjarkjarni Þorlákshöfn" á reit sem kallaður er M1 í aðalskipulagi. Samtímis er aðalskipulagi breytt þannig að íbúðum í reitnum er fjölgað úr 80 í 200.Deiliskipulagsbreytingin markar miðbæjartorg á reitnum, umkringt húsum sem hýsa ýmsa miðbæjarstarfsemi þar á meðal hótel. Íbúðir verða einnig á efri hæðum húsa sem geta orðið allt að 5 hæðir.

Miðbær deiliskipulagsuppdráttur

Miðbær deiliskipulagsgreinargerð

Breyting á deiliskipulaginu Gljúfurárholt land 10 - Staður

Breytingin er fyrirhuguð á deiliskipulagi fyrir Stað í Ölfusi, sem áður hét Gljúfurárholt land 10. Heimildir til uppbyggingar á landinu eru aðlagaðar breytingum í nýju aðalskipulagi. Hætt var við lóð fyrir samfélagsþjónustu sem gert var ráð fyrir í eldra skipulagi en í stað hennar settur reitur fyrir verslun og þjónustu. Hugmyndin er að byggja upp gistiaðstöðu í smáhýsum á reit, nyrst í landinu. Að auki eru heimildir til uppbyggingar á örðum hlutum landsins skilgreindar nánar í samræmi við nýtt aðalskipulag.

Staður deiliskipulagsuppdráttur

Breyting á deiliskipulaginu Hjarðarból lóð 1

Lögð er fram breyting á deiliskipulaginu Hjarðarból lóð 1, þar sem byggingarheimildir á þremur af lóðunum sem skipulagið markar er breytt til samræmis við heimildir í nýju aðalskipulagi. Einnig er hámarks mænishæð aukin lítillega á lóðunum þremur, eða úr 6m í 6,6m.

Hjarðarból lóð 1 deiliskipulagsuppdráttur

Tillögurnar verða til sýnis á bæjarskrifstofu Ölfuss, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn dagana 17. ágúst til 28. september 2023. Hægt er að senda ábendingar eða athugasemdir á netfangið skipulag@olfus.is fyrir lok vinnudags þann 28. september 2023.

 

Gunnlaugur Jónasson, skipulagsfulltrúi

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?